Fara beint í efni

Störf iðnmeistara

Iðnmeistarar gegna ólíkum störfum og hlutverkum eftir eðli starfseminnar, stærð fyrirtækis og stöðu meistarans innan þess. Í litlu iðnfyrirtæki – þeim algengustu hér á landi – er meistarinn allt í senn atvinnurekandi, stjórnandi, faglegur leiðtogi og leiðbeinandi. Í stærri fyrirtækjum er verkaskiptingin skýrari: viðskiptamenntað fólk sér æ oftar um fjármálin en meistarar um stjórnun, faglega umsjón og leiðsögn. Meistaranámið býr undir þessi hlutverk.

Fyrirtækjarekstur

Meistari í atvinnurekstri ber ábyrgð á að lögum sé framfylgt og að fyrirtækið sé rekið á hagkvæman hátt, óháð stærð þess og starfsemi. Hvort sem hann vinnur þættina hér að neðan sjálfur eða ræður aðra til þess er ábyrgðin hans. Hann þarf því grundvallarþekkingu á rekstri og að geta lagt sjálfstætt mat á einstaka þætti.

Stefnumótun og áætlanagerð

Sérhvert fyrirtæki þarf stefnu og áætlanir til lengri og skemmri tíma: markmið um þróun vöru og þjónustu með hliðsjón af markaðnum, áætlanir um fjárfestingar í tækjum, búnaði, efni og mannafla miðað við greiðslugetu, og skipulag framleiðslu og sölu sem tryggir gæði, afköst og afkomu. Í meistaranáminu er gefið yfirlit yfir helstu tegundir áætlana og undirstöðuþættir stefnumótunar kynntir; í valnámi má fara dýpra.

Tilboð og verksamningar

Formleg, skrifleg tilboð í verk og verksamningar milli verktaka og verkkaupa eru mikilvægur þáttur í störfum margra iðnmeistara – ekki bara í stórum opinberum útboðum, heldur óska einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki í vaxandi mæli eftir tilboðum í stór og smá verk. Tilboðsgerð byggir á nákvæmri greiningu verkþátta og verðlagningu þeirra. Í meistaranáminu er farið í undirstöðuatriðin; í valnámi er áfangi þar sem viðfangsefnið er tekið fyrir í heild.

Fjármálaumsýsla

Rekstur krefst fjármálaumsýslu eftir lögum og reglum: viðskipti við banka og lánastofnanir, skattyfirvöld og tryggingastofnanir, gerð fjárhags- og rekstraráætlana, reikningsskil og umsýsla bókhaldsgagna. Meistaranámið veitir yfirsýn og skilning á undirstöðuþáttum rekstrar og fjármála; í valnámi má ganga lengra, t.d. með námskeiðum um tölvubókhaldskerfi.

Stjórnun í fyrirtækjum

Störf allra iðnmeistara felast að meira eða minna leyti í skipulagningu og stjórnun.

Verkstjórn og starfsmannastjórnun

Í minni fyrirtækjum fara verkstjórn og starfsmannastjórnun oft saman. Meistarinn ræður nýja starfsmenn og setur þá inn í störf og umgengnishætti, skipuleggur verk og verkaskiptingu, annast faglega tilsögn og lítur eftir gæðum og afköstum. Mannþekking og samskipti eru lykilatriði: hann hefur áhrif á starfsanda og líðan, leysir ágreining, tekur viðtöl og stjórnar fundum, og ber ábyrgð á að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustað séu samkvæmt lögum. Í meistaranáminu er farið ítarlega í þessa þætti, með áherslu á æfingu í samskiptum og samskiptatækni; í valnámi er frekara nám á sviði verkstjórnar.

Verkefnastjórnun

Verkefnisstjóri annast áætlanagerð fyrir tiltekin verk og hefur umsjón og eftirlit með þeim: áætlar umfang og tímamörk, greinir verkið í þætti, áætlar efnis- og mannaflaþörf, skilgreinir kröfur um gæði og afköst og ber ábyrgð á að verki ljúki á réttum tíma, með tilskildum gæðum og innan kostnaðarmarka. Kjarnanám meistaranámsins er undirstaðan; í vali er viðbótarnám á einstökum sviðum verkefnastjórnunar.

Innkaupa- og birgðastýring

Iðnmeistari skipuleggur og stjórnar innkaupum og birgða- eða lagerhaldi eða hefur eftirlit með því; umfangið er misjafnt eftir iðngreinum. Í meistaranáminu kemur þetta við sögu í áætlanagerð og kostnaðarútreikningum, og sérstakur valáfangi er um efnið.

Þjónusta við viðskiptavini

Meistarinn ber höfuðábyrgð á gæðum þjónustunnar, framkomu við viðskiptavini og hvernig farið er að óskum þeirra, og leiðbeinir starfsmönnum í þeim efnum ekki síður en í faglegum vinnubrögðum. Í meistaranáminu eru kennd undirstöðuatriði góðrar þjónustu, og nokkrir valáfangar tengjast efninu sérstaklega.

Kennsla og leiðsögn

Meistari gerir náms- og starfsþjálfunarsamninga við iðnnema og ber ábyrgð á að þeir fái tilskilda þjálfun samkvæmt lögum, reglum og námskrá. Hann kennir nemanum vinnubrögð og meðferð efna og tækja, fylgist með framvindu þjálfunar, metur þjálfunarþörf annarra starfsmanna og leiðbeinir nýliðum. Meistaranámið eflir vitund um fræðsluhlutverk meistara, gefur innsýn í iðnnámskerfið og þjálfar undirstöðuþætti verklegrar kennslu.

Faglegt leiðtoga- og ráðgjafarstarf

Löggilding starfsheitis iðnmeistara byggir á því að titillinn tryggi viðskiptavini ákveðin gæði. Meistarinn stýrir framkvæmdum, velur efni og verktækni, metur aðstæður – m.a. út frá kröfum umhverfisverndar – ber ábyrgð á gæðum vöru og þjónustu og ráðleggur viðskiptavinum, starfsmönnum og iðnnemum í faglegum efnum. Það skuldbindur hann til að fylgjast með þróun í greininni og leita stöðugt meiri þekkingar. Fagnám meistaranámsins er sniðið að mati atvinnulífsins á þörf meistara fyrir faglegt viðbótarnám umfram sveinspróf og starfsreynslu.

Gæðastjórnun

Gæðastjórnun er ekki sjálfstætt verkefni heldur aðferðafræði sem má beita í öllum þáttunum hér að ofan. Í meistaranáminu eru grundvallaratriði hennar kynnt og hægt að dýpka þekkinguna í valnámi.