Meistaranám rafvirkja
Náminu er skipt í tvo hluta, A og B, í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja auk kennslu og leiðsagnar. Í B-hluta eru einnig fög tengd fyrirtækjum og rekstri auk fagtengds efnis greinar þar sem við á. Samtals 38 einingar.
Rafmennt annast kennslu í faggreinahluta meistaranáms rafvirkja. Námið fer fram í námskeiðsformi og eru fagreinarnar samtals 30 einingar. Kjarnagreinar eru 26 einingar og síðan eru 4 einingar í vali t.d. af áföngum innan pakkavals. Fagnámskeið Rafmenntar geta einnig talið í valgreinum meistaranáms. Nemendur verða að taka að minnsta kosti 7 einingar á önn til að teljast í reglulegu meistaranámi og njóta þeir þá niðurgreiðslu námsskeiðsgjalda. Námskeiðin eru flest skipulögð sem eins til þriggja daga námskeið í stað og eða fjarnámi. Öllum námskeiðum lýkur þeim með formlegu námsmati í samræmi við markmið og innihald áfangans.
Nánari upplýsingar um skipulag námsins, skv. námskrá, og áfangalýsingar fyrir meistaranema í rafvirkjun má finna í listanum hér fyrir neðan:
Kjarni | Einingar |
1 | |
1 | |
Jarðtengikerfi - Spennujafnanir og jarðtengingar lágspennu og smáspennukerfa | 1 |
2 | |
2 | |
1 | |
2 | |
Reglugerðir og rafdreifikerfi I/II/III | 6 |
5 | |
Öryggisfræði: Brunaviðvörunarkerfi og -þéttingar/Aðgangsstýrikerfi/Vinnuvistfræði | 5 |
Fjöldi kjarnaeininga: | 26 |
Fjöldi valeininga: | 4 |
Samtals einingafjöldi: | 30 |
Tillögur af vali | |
Öll önnur tæknileg námskeið hjá Rafmennt eru einnig hluti af vali í meistaranámi. |