Fara beint í efni

Meistaranám rafeindavirkja

Náminu er skipt í tvo hluta, A og B, í A-hluta eru grunnáfangar í rekstri, stjórnun og stofnun fyrirtækja auk kennslu og leiðsagnar. Í B-hluta eru einnig fög tengd fyrirtækjum og rekstri auk fagtengds efnis greinar þar sem við á. Samtals 38 einingar.

Rafmennt annast kennslu í faggreinahluta meistaranáms rafeindavirkja. Námið fer fram í námskeiðsformi og eru fagreinarnar samtals 20 einingar. Kjarnagreinar eru 14 einingar og síðan eru 6 einingar í vali sem tengist fagvinnu rafeindavirkja meistara. Fagnámskeið Rafmenntar geta talið í valgreinum meistaranáms. Nemendur verða að taka að minnsta kosti 5 einingar á önn til að teljast í reglulegu meistaranámi og njóta þeir þá niðurgreiðslu námsskeiðsgjalda. Námskeiðin eru flest skipulögð sem eins til þriggja daga námskeið í stað og eða fjarnámi. Öllum námskeiðum lýkur þeim með formlegu námsmati í samræmi við markmið og innihald áfangans.

Kjarni

Einingar

Fjarskiptakerfi reglugerðir og staðlar

1

Raflagnatækni

2

Stýringar: Iðntölvur I/Ljósleiðarar/Forritanleg raflagnakerfi I og II

6

Öryggisfræði: Brunaviðvörunarkerfi og -þéttingar/Aðgangsstýrikerfi/Vinnuvistfræði

5

Fjöldi kjarnaeininga:

14

Fjöldi valeininga:

6

Samtals einingafjöldi:

20

Tillögur af vali

Netkerfi:Tæknikerfi(OT) - Fortinet

Netkerfi: Unifi-Wifi

ESP32 Örstýringar

DALI ljósastýringar

Forritun á iðnaðarþjörkum

Öll önnur tæknileg námskeið hjá Rafmennt eru einnig hluti af vali í meistaranámi.